Málræktarsjóður - aðalfundur 2020

Málsnúmer 2020050223

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3684. fundur - 20.05.2020

Erindi dagsett 13. maí 2020 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins föstudaginn 12. júní nk. kl. 15:30 í fundarsalnum Kötlu á Hótel Sögu í Reykjavík. Akureyrarbær á rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráð sjóðsins.
Bæjarráð felur Hólmkeli Hreinssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum. Einnig tilnefnir bæjarráð Hólmkel í fulltrúaráð Málræktarsjóðs. Bæjarráð hvetur Málræktarsjóð til að kanna möguleika þess að halda fundi sína með rafrænum hætti.