Steindórshagi 12-18 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040544

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 769. fundur - 20.05.2020

Erindi dagsett 27. apríl 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 12-18 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Einnig hefur verið óskað heimildar til jarðvegsskipta.
Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti en frestar erindinu að öðru leyti.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 770. fundur - 28.05.2020

Erindi dagsett 27. apríl 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 12-18 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 772. fundur - 30.06.2020

Erindi dagsett 27. apríl 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf., kt. 680303-3630, sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 12-18 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Innkomnar teikningar 11. júní 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.