Ægisgata 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040416

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 772. fundur - 30.06.2020

Erindi dagsett 19. apríl 2020 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Múrfags ehf., kt. 570196-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 1 við Ægisgötu. Fyrirhugað er að stækka baðherbergi, færa eldhús og endurnýja lagnir, endurnýja glugga og svalahurð og endurnýja þakklæðningu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.