Jaðarsíða 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040102

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 766. fundur - 30.04.2020

Erindi dagsett 7. apríl 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Stefáns Þórs Guðmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 2 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði. Byggingarfulltrúi heimilar jarðvegsskipti á gundvelli innlagðra teikninga.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 771. fundur - 05.06.2020

Erindi dagsett 7. apríl 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Stefáns Þórs Guðmundssonar og Ómars Björgvinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 2 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Sigmar Árnason. Innkomnar teikningar 26. maí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.