Götumálun á Akureyri 2020

Málsnúmer 2020040033

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 76. fundur - 17.04.2020

Lagt fram minnisblað dagsett 2. apríl 2020 varðandi götumálun á Akureyri 2020.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við Vegamálun ehf. um götumálun hjá Akureyrarbæ á árinu 2020.