Sláttur og hirðing 2020-2021 - útboð

Málsnúmer 2020030732

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 76. fundur - 17.04.2020

Lögð fyrir niðurstaða frá opnun tilboða vegna útboðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Adda Tryggva ehf. í slátt og hirðingu í Naustahverfi en að hafna tilboðum í önnur svæði en taka upp viðræður við lægstbjóðanda Leó verktaka ehf. í þau svæði og samningar liggja fyrir.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 79. fundur - 05.06.2020

Þjónustustig í slætti á Akureyri sumarið 2020 lagt fram til kynningar.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.