Mál til umsagnar hjá nefndasviði Alþingis og í samráðsgátt stjórnvalda

Málsnúmer 2020030456

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3676. fundur - 26.03.2020

Kynnt erindi dagsett 13. mars 2020 frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) sem ætla hér eftir að senda sveitarfélögum og eftir atvikum öðrum hagaðilum, upplýsingar um mál sem eru til umsagnar hjá stjórnvöldum. Felst það í því að senda reglulega upplýsingar um slík mál, vekja athygli á þeim og fresti til að skila umsögn. SSNE verða einnig til taks til að aðstoða sveitarfélögin við ritun umsagna og samræma slíka vinnu þegar fleiri en eitt sveitarfélag vilja sameinast um umsagnir.