Blesagata 10 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna lóðarstækkunar

Málsnúmer 2020030304

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 340. fundur - 08.07.2020

Erindi dagsett 11. mars 2020 þar sem Þórunn Halldórsdóttir leggur inn fyrirspurn varðandi stækkun lóðar nr. 10 við Blesagötu. Fyrirhugað er að gera bílastæði innan lóðar eins og skylda er og kveðið á um í lóðarsamningi en það hefur reynst ógerningur vegna halla innan lóðar. Mælingamaður fór á staðinn og mældi út, sjá mynd.
Skipulagsráð samþykkir ekki lóðarstækkun til samræmis við erindi þar sem á þessu svæði er gert ráð fyrir snúningshaus á Blesagötu.