Tillaga til þingsályktunar um stöðu barna tíu árum eftir hrun, 191. mál

Málsnúmer 2020020642

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3674. fundur - 05.03.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 25. febrúar 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stöðu barna tíu árum eftir hrun, 191. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 17. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0195.html
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með þingsályktunina og telur afar mikilvægt að staða barna í landinu verði könnuð með heildrænum hætti.