Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum (réttur til einbýlis á öldrunarstofnunum), 323. mál

Málsnúmer 2020020639

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3674. fundur - 05.03.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 25. febrúar 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum (réttur til einbýlis á öldrunarstofnunum), 323. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0366.html
Bæjarráð tekur undir frumvarpið en leggur áherslu á að daggjöld frá ríkinu duga ekki fyrir rekstri hjúkrunarheimila og mikilvægt er að það verði leiðrétt án frekari tafa.