Erindi til Akureyrarbæjar vegna sviðsvagns

Málsnúmer 2020020554

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 73. fundur - 21.02.2020

Tekin fyrir beiðni um kaup á sviðsvagni í eigu bæjarins.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að sviðsvagninn verði auglýstur til sölu og felur starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá sölunni.