Búnaðarkaup UMSA 2020

Málsnúmer 2020020503

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 73. fundur - 21.02.2020

Teknar fyrir beiðnir til búnaðarkaupa frá MAk og frístundaráði dagsettar 18. febrúar 2020.
Umhverfis og mannvirkjaráð samþykkir fyrirliggjandi beiðnir til búnaðarkaupa.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 74. fundur - 06.03.2020

Tekin fyrir beiðni dagsett 19. febrúar 2020 frá fræðsluráði um fjármagn til búnaðarkaupa.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni fræðsluráðs að upphæð kr. 30 milljónir til búnaðarkaupa.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 78. fundur - 15.05.2020

Tekin fyrir ósk um fjárveitingu til kaupa á stofnbúnaði í þjónustukjarna fyrir fatlað fólk í Klettaborg.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup upp á kr. 4.800.000 og að þau verði tekin af liðnum búnaðarkaup í áætlun sviðsins.