Umsókn um stuðning vegna úttektar á rekstri málaflokks fatlaðra

Málsnúmer 2020020486

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3677. fundur - 02.04.2020

Lagt fram svar dagsett 30. mars 2020 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga við umsókn Akureyrarbæjar um framlag til úttektar á rekstri málaflokks fatlaðs fólks í Akureyrarbæ.

Erindið var tekið til afgreiðslu og umfjöllunar á fundi ráðgjafarnefndar 27. mars 2020 og samþykkti nefndin að veita sveitarfélaginu framlag allt að 8 milljónir króna vegna framangreindrar úttektar.

Bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson, Heimir Haraldsson og Þórhallur Jónsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og felur bæjarstjóra að láta gera úttektina.