Vilhjálmur Ingi Sigurðarson - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020101

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 17. janúar 2020 frá Vilhjálmi Inga Sigurðarsyni þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins Draumur á Jónsmessunótt sem eru miðnæturtónleikar í Akureyrarkirkju á Jónsmessuhátíð á Akureyri 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins.