Listvinafélag Akureyrarkirkju - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020082

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 1. febrúar 2020 frá Listvinafélagi Akureyrarkirkju þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til verkefnisins Afmælisár í tónum sem er tónleikaröð í tilefni 80 ára vígsluafmælis Akureyrarkirkju og 25 ára vígsluafmælis orgels Akureyrarkirkju.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 190.000 til verkefnisins.