Kammerkór Norðurlands - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020061

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 2. febrúar 2020 frá Kammerkór Norðurlands þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til verkefnisins 20 ára afmælistónleikar Kammerkórs Norðurlands og upptöku á hljómdiski. Verkefnið verður á árinu 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 til verkefnisins.