Myndlistarfélagið - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020058

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 2. febrúar 2020 frá Myndlistarfélaginu þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til verkefnisins Tilraunastofa í listum sem er samstarfsverkefni Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins á tímabilinu mars til maí 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 190.000 til verkefnisins.