ÁLFkonur ljósmyndaklúbbur - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020054

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 2. febrúar 2020 frá Gunnlaugu E. Friðriksdóttur, f.h. ÁLFkvenna ljósmyndaklúbbs, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins HEMA / HOME sem er samstarfsverkefni ljósmyndaklúbbsins og hóps ljósmyndara í Edinborg sem endar með sýningum í báðum borgum á Akureyrarvöku 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins.