Libia Castro, Ólafur Ólafsson og Cycle tónlistar- og myndlistarhátíðin - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020052

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 2. febrúar 2020 frá Sunnu Ástþórsdóttur, f.h. Libiu Castro, Ólafs Ólafssonar og Cycle tónlistar- og myndlistarhátíðarinnar, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til þátttöku kammerkórsins Hymnodiu í tónlistarverkefni á Listahátíð í Reykjavík og sýning á verkinu í Listasafninu á Akureyri sumarið 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 190.000 til verkefnisins.