Bílasafn Akureyrar - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020050

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 2. febrúar 2020 frá Antoni Ólafssyni, f.h. Bílasafns Akureyrar, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 200.000 til verkefnisins Samgöngusaga Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu vegna vinnu við að koma gögnum yfir á tölvutækt form á árinu 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.