Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2020

Málsnúmer 2020010444

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3668. fundur - 23.01.2020

Rætt um fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við byggingu þjónustukjarna í Klettaborg.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 85.609.023 með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 93.000.000, með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarráð hefur kynnt sér.

Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið vegna byggingar þjónustuíbúða fyrir fólk með fötlun, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn - 3467. fundur - 04.02.2020

Lögð fram tillaga um lántöku Akureyrarbæjar hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við byggingu þjónustukjarna í Klettaborg. Bæjarráð samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti þann 23. janúar sl.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 85.609.023 með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 93.000.000, með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið vegna byggingar þjónustuíbúða fyrir fólk með fötlun, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélags um Lánsjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarráð - 3677. fundur - 02.04.2020

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson og Þórhallur Jónsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 800.000.000 kr. til 14 ára, með jöfnum 28 afborgunum ásamt vöxtum og verðbótum, í fyrsta skipti 5. október 2020 og lokagjalddaga 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarráð hefur kynnt sér. Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið vegna byggingar leiksskóla, endurbóta á Glerárskóla og gatnagerðar í sveitarfélaginu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn - 3473. fundur - 21.04.2020

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Bæjarráð samþykkti samninginn fyrir sitt leyti þann 2. apríl sl.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni samningsins.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 800.000.000 kr. til 14 ára, með jöfnum 28 afborgunum ásamt vöxtum og verðbótum, í fyrsta skipti 5. október 2020 og lokagjalddaga 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið vegna byggingar leikskóla, endurbóta á Glerárskóla og gatnagerðar í sveitarfélaginu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarráð - 3682. fundur - 07.05.2020

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 500 milljónir til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3475. fundur - 19.05.2020

Liður 4 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 7. maí 2020:

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 500 milljónir til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni samningsins.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 500.000.000 kr. til 14 ára, með jöfnum 27 afborgunum ásamt vöxtum og verðbótum, í fyrsta skipti 5. apríl 2021 og lokagjalddaga 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarráð - 3703. fundur - 29.10.2020

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 800 milljónir til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3482. fundur - 03.11.2020

Liður 4 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 29. október 2020:

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 800 milljónir til fjármögnunar á fjárfestingum skv. framkvæmdaáætlun 2020.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti innihald samningsins.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 800.000.000 kr. til 13 ára, með jöfnum 27 afborgunum ásamt vöxtum og verðbótum, í fyrsta skipti 5. apríl 2021 og lokagjalddaga 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum og endurfjármögnun afborgana eldri lána, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarráð - 3708. fundur - 03.12.2020

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 800 milljónir til fjármögnunar á framkvæmdum og endurfjármögnun afborgana eldri lána.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3486. fundur - 15.12.2020

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 3. desember 2020:

Lagður fram lánssamningur frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Akureyrarbæjar að fjárhæð kr. 800 milljónir til fjármögnunar á framkvæmdum og endurfjármögnun afborgana eldri lána.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir lántökuna fyrir sitt leyti með fimm samhljóða atkvæðum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti málið.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir hér með, með 11 samhljóða atkvæðum, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 800.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.

Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, verðbótum auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins og endurfjármögnun afborgana eldri lána sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.