Starfslaun listamanna 2020

Málsnúmer 2020010431

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 293. fundur - 23.01.2020

Stjórn Akureyrarstofu þarf að skipa þrjá fulltrúa í faghóp vegna starfslauna listamanna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Ragnheiði Björk Þórsdóttur, Petreu Óskarsdóttur og Þórarinn Torfason sem faghóp vegna starfslauna listamanna.

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Lögð fram tillaga fagráðs að starfslaunum listamanna 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu fagráðs. Tilkynnt verður um hver varð fyrir valinu á Vorkomu Akureyrarstofu.