Tillaga til þingsályktunar um Akureyri sem miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi, 182. mál

Málsnúmer 2019120122

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3666. fundur - 19.12.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. desember 2019 frá utanríkismálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um Akureyri sem miðstöð málefna norðurslóða á Íslandi, 182. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0183.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn vegna tillögunnar.