Tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, 435. mál

Málsnúmer 2019120118

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3666. fundur - 19.12.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. desember 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, 435. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjölin er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0598.html og https://www.althingi.is/altext/150/s/0599.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa umsögn vegna málsins.