Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2019/2020

Málsnúmer 2019100504

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3667. fundur - 16.01.2020

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 30. desember 2019 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020, 158 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 103 þorskígildistonn vegna Grímseyjar. Í bréfinu kemur fram að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 27. janúar 2020.

Bæjarráð - 3670. fundur - 06.02.2020

Lagt fram til kynningar bréf til atvinnu- og sjávarútvegsráðuneytisins þar sem Akureyrarbær óskar eftir að veitt verði undanþága í 6. gr. reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 vegna stöðu atvinnumála í Grímsey.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir undanþágu í samræmi við framlagt bréf til Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

Bæjarráð - 3686. fundur - 04.06.2020

Lögð fram drög að erindi til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um afnám vinnsluskyldu á byggðakvóta til Hríseyjar vegna bruna hjá Hrísey Seafood ehf. 28. maí sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn framlagt erindi.