Viðauki vegna NPA

Málsnúmer 2019090589

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1312. fundur - 04.12.2019

Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun NPA notendastýrð þjónusta að upphæð kr. 45,7 milljónir vegna ársins 2019.

Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð - 1313. fundur - 18.12.2019

Lögð er fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun Notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) um upphæð kr. 45,7 milljónir vegna ársins 2019.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun og vísar málinu til bæjarráðs.

Bæjarráð - 3667. fundur - 16.01.2020

Liður 1 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 18. desember 2019:

Lögð er fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun Notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) um upphæð kr. 45,7 milljónir vegna ársins 2019.

Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarstjórn.