Molta ehf. - framtíðaráform

Málsnúmer 2019080393

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3651. fundur - 05.09.2019

Tekið fyrir minnisblað dagsett 20. ágúst 2019 frá Kristjáni Ólafssyni framkvæmdastjóra Moltu ehf. um framtíðaráform félagsins.

Jón Þorvaldur Heiðarsson stjórnarformaður og Kristján Ólafsson framkvæmdastjóri Moltu ehf. ásamt Sigmundi Einari Ófeigssyni framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar gestunum fyrir komuna á fundinn. Bæjarráð styður áform félagsins um að leita eftir nýju athafnasvæði fyrir framtíðaruppbyggingu.