Umsókn Circle Air um leyfi til þyrlulendinga í Glerárdal - beiðni um umsögn Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019070448

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3646. fundur - 18.07.2019

Erindi dagsett 12. júlí 2019 frá Umhverfisstofnun þar sem óskað er eftir umsögn Akureyrarbæjar varðandi umsókn Circle Air um leyfi til þyrlulendinga innan fólkvangsins í Glerárdal. Þess er óskað að umsögnin berist eigi síðar en 18. júlí nk.
Bæjarráð samþykkir með 5 samhljóða atkvæðum að gera ekki athugasemd við umsóknina.