Möðruvallastræti 1A - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2019070358

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 731. fundur - 11.07.2019

Erindi dagsett 9. júlí 2019 þar sem Jóhannes Birgir Atlason og Snæbjörg Elva Svansdóttir sækja um leyfi fyrir bílastæði og úrtaki á kantsteini við hús sitt nr. 1A við Möðruvallastræti. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 6 metra breytt bílastæði með allt að 7 metra úrtaki úr kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.