Langholt 15 - umsókn um stækkun bílastæðis og úrtak í kantstein

Málsnúmer 2019060288

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 728. fundur - 20.06.2019

Erindi dagsett 14. júní 2019 þar sem Sölvi Lárusson sækir um stækkun á bílastæði og úrtöku úr kantsteini við hús sitt nr. 15 við Langholt skv. meðfylgjandi mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði og 7 m heildarúrtak í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.