Möðruvallastræti 2 - umsókn um bílastæði og úrtak í kantstein

Málsnúmer 2019060165

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 728. fundur - 20.06.2019

Erindi dagsett 12. júní 2019 þar sem Helgi Kristínarson Gestsson sækir um úrtöku úr kantsteini og bílastæði við hús nr. 2 við Möðruvallastræti. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 5 metra úrtak í kantstein og bílastæði innan lóðar með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.