Halldóruhagi 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019060004

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 732. fundur - 18.07.2019

Erindi dagsett 31. maí 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 3 við Halldóruhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 17. júlí 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf, í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar.