Styrkbeiðni til frístundaráðs vegna Dance World Cup

Málsnúmer 2019050561

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 57. fundur - 05.06.2019

Erindi dagsett 24. maí 2019 frá Evu Reykjalín fyrir hönd Steps dancecenter þar sem óskað er eftir styrk vegna keppnisferðar liðs Steps dancecenter á Dance World Cup 2019 en mótið fer fram í Portúgal á komandi sumri.

Helgi Rúnar Bragason framkvæmdastjóri ÍBA sat fundinn undir þessum lið.
Frístundaráð samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 vegna ferðarinnar.