Borgarsíða 1 - umsókn um viðbyggingu

Málsnúmer 2019050112

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 722. fundur - 08.05.2019

Erindi dagsett 30. apríl 2019 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd John Júlíusar Cariglia og Þóru Pétursdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 1 við Borgarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.