Akstur fyrir fatlaða - útboð

Málsnúmer 2019030363

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 53. fundur - 01.04.2019

Lagt fyrir minnisblað dagsett 26. mars 2019 þar sem óskað er eftir heimild umhverfis- og mannvirkjaráðs til þess að bjóða út þjónustu ferliþjónustubíla, sem geta flutt hjólastóla og þá bæði með bílstjóra og einnig án bílstjóra þegar á þarf að halda.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að að bjóða út þjónustu ferliþjónustubíla, sem geta flutt hjólastóla og þá bæði með bílstjóra og án bílstjóra þegar á þarf að halda.