Akureyrarbær verði uppbyggingastaður fyrir verndun og viðhald tréskipa

Málsnúmer 2019030045

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 276. fundur - 16.04.2019

Þorsteinn S. Pétursson kom í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Óskar eftir að Akureyrarkaupstaður komi að því að bærinn verði uppbyggingarstaður fyrir verndun og viðhald tréskipa. Að hér verði þekking efld og nýnemar fengnir til starfa eftir því sem verkefni skapast. Hann leggur til að þetta verði samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Slippsins, Hafnasamlags Norðurlands, Háskólans á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Þjóðminjasafns og Minjastofnunar.

Bæjarráð tók erindið fyrir á fundi sínum þann 7. mars og vísaði því til stjórnar Akureyrarstofu.

Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir því að AFE taki málið til skoðunar og kalli hagsmunaaðila til fundar. Einnig samþykkir stjórnin að vísa erindinu til verkefnastjórnar um safnastefnu.