Samþykkt Akureyrarkaupstaðar um götu og torgsölu - endurskoðun 2018-2019

Málsnúmer 2019030043

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 313. fundur - 10.04.2019

Á fundi skipulagsráðs þann 14. nóvember 2018 var samþykkt að fela sviðsstjóra skipulagssviðs að setja í gang vinnu við endurskoðun samþykktar um götu og torgsölu og voru Þórhallur Jónsson D-lista og Helgi Snæbjarnarson L-lista í vinnuhóp vegna endurskoðunarinnar. Er nú búið að skipa vinnuhóp sem í sitja, fyrir utan Þórhall og Helga, starfsmenn frá umhverfis- og mannvirkjasviði, skipulagssviði, Akureyrarstofu auk fulltrúa frá Miðbæjarsamtökunum.
Skipulagsráð samþykkir erindisbréf vinnuhópsins og einnig að vinnuhópurinn verði launaður.