Frumvarp til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir o.fl. (stjórnvaldssektir o.fl.), 542. mál

Málsnúmer 2019020446

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3630. fundur - 07.03.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. febrúar 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir o.fl. (stjórnvaldssektir o.fl.), 542. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0895.html

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Alfreð Schiöth framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir með 5 samhljóða atkvæðum að fela bæjarlögmanni að senda inn athugasemdir við 10. og 19. grein frumvarpsins í samræmi við umræður á fundinum.