Katrín Birna Vignisdóttir - umsókn um sumarstyrk ungra listamanna

Málsnúmer 2019020320

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 274. fundur - 21.03.2019

Erindi dagsett 6. febrúar 2019 frá Katrínu Birnu Vignisdóttur sem sækir um Sumarstyrk ungra listamanna 2019 að upphæð kr. 600.000. Markmið stuðningsins er að gera styrkhafa kleift að takmarka vinnu sína með námi og leggja meiri áherslu á að iðka list sína og koma fram á sumarhátíðum bæjarins.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 600.000 til verkefnisins.