Kaupvangsstræti 1 - umsókn um byggingarleyfi, forrými á 2. hæð

Málsnúmer 2019020235

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 711. fundur - 21.02.2019

Erindi dagsett 12. febrúar 2019 þar sem Gísli Gestsson fyrir hönd Ljósmyndavara ehf., kt. 540174-0409, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2. hæð húss nr. 1 við Kaupvangsstræti. Fyrirhugað er að útbúa nýtt forrými við lyftu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnlaug Jónasson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.