Sesselía Ólafsdóttir - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2019

Málsnúmer 2019020104

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 274. fundur - 21.03.2019

Erindi dagsett 5. febrúar 2019 frá Sesselíu Ólafsdóttur þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til handritsgerðar og könnunar á tökustöðum vegna stuttmyndarinnar Betur sjá augu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 til verkefnisins.