Olíutankar við starfstöðvar Akureyrarbæjar - möguleg kaup

Málsnúmer 2019010362

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 49. fundur - 01.02.2019

Lagt var fram minnisblað dagsett 30. janúar 2019 varðandi möguleg kaup á olíutönkum við Umhverfismiðstöð, Malbikunarstöð, Hlíðarfjall og Lystigarð.

Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að kaupa 7 olíutanka fyrir upphæð kr. 1.570.000 án vsk.