Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda

Málsnúmer 2019010347

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 3. fundur - 04.02.2019

Lagt fram til kynningar bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 23. janúar 2019 um áform stjórnvalda að kennarar afli sér kennsluréttinda í námi sínu óháð tilteknu skólastigi með einu grunnleyfisbréfi. Komin eru inn á samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Opið er fyrir samráð og umsagnir til 4. febrúar.