Íslensku vetrarleikarnir - Iceland Winter Games 2019 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2019010286

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 271. fundur - 07.02.2019

Erindi ódagsett frá Viðburðastofu Norðurlands þar sem óskað er eftir þriggja ára samningi til að halda vetraríþróttahátíðina Iceland Winter Games / Íslensku Vetrarleikana (IWG).
Stjórn Akureyrarstofu tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að gera drög að samningi.

Stjórn Akureyrarstofu - 276. fundur - 16.04.2019

Lagður fram til samþykktar samningur vegna Iceland Winter Games 2019. Erindið var áður á dagskrá stjórnar þann 7. febrúar sl.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan samning og felur deildarstjóra Akureyrarstofu að hefja viðræður við forsvarsmenn IWG um framtíð hátíðarinnar og mögulegt áframhaldandi samstarf til næstu ára.