Stækkun Keflavíkurflugvallar - beiðni um umsögn

Málsnúmer 2019010145

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3624. fundur - 24.01.2019

Erindi dagsett 9. janúar 2019 þar sem Jón Þórir Þorvaldsson f.h. Skipulagsstofnunar óskar eftir umsögn Akureyrarkaupstaðar um tillögu að matsáætlun um stækkun Keflavíkurflugvallar. Umsögn óskast send fyrir 25. janúar 2019.
Bæjarráð bendir á að eðlilegt sé að meta umhverfisleg og samfélagsleg áhrif stækkunar Keflavíkurflugvallar á dreifingu ferðamanna um landið. Jafnframt bendir bæjarráð á að stækkun Keflavíkurflugvallar og aukin flugumferð um völlinn kallar á tafarlausa uppbyggingu varaflugvalla bæði á Akureyri og Egilsstöðum.