Umboð til kjarasamningsgerðar

Málsnúmer 2018120023

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3621. fundur - 13.12.2018

Lögð fram drög að samkomulagi um kjarasamningsumboð Akureyrarbæjar til SNS f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna samninga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að umboði og felur bæjarstjóra að ganga frá því f.h. bæjarins.