Frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðisbætur (réttur námsmanna og fatlaðs fólks) 140. mál

Málsnúmer 2018110284

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3620. fundur - 06.12.2018

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. nóvember 2018 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðisbætur (réttur námsmanna og fatlaðs fólks), 140. mál 2018.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0140.html
Bæjarráð Akureyrar leggur áherslu á mikilvægi þess að komið verði á sanngjörnum úthlutunarreglum húsaleigubóta til nemenda sem leigja saman rými.