Eyrarlandsvegur 31 - fyrirspurn vegna útlitsbreytinga

Málsnúmer 2018070493

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 296. fundur - 25.07.2018

Erindi dagsett 13. júlí 2018 þar sem Lárus Valberg Valbergsson leggur inn fyrirspurn varðandi viðbyggingu og útlitsbreytingar á húsi nr. 31 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi er álit Minjastofnunar, teikningar og ljósmyndir.
Skipulagsráð heimilar umsækjanda að láta vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins.