Klettagerði 2 - umsókn um leyfi fyrir stækkun bílastæðis

Málsnúmer 2018070474

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 685. fundur - 23.07.2018

Erindi dagsett 17. júlí 2018 þar sem Hilmar Guðmundsson og Kristín Þórsdóttir sækja um leyfi til að stækka bílastæðið við hús sitt nr. 2 við Klettagerði. Meðfylgjandi eru myndir.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á núverandi stæði í 6 metra breytt bílastæði með 7 metra úrtaki, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Byggingarfulltrúi getur fallist á stæði fyrir hjól og kerru en ekki verður gert sérstakt úrtak í kantstein vegna þess.

Varðandi frágang á gangstétt og kantsteinum skal haft samband við umhverfis- og mannvirkjasvið.