Steinahlíð 3f - umsókn um smáhýsi

Málsnúmer 2018060560

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 683. fundur - 05.07.2018

Erindi móttekið 25. júní 2018 þar sem Sigurfinnur Finnsson og Eva Hildur Magnúsdóttir sækja um leyfi til að setja niður smáhýsi á lóð sinni við Steinahlíð 3f. Meðfylgjandi er afstöðumynd og samþykki meðeigenda og nágranna í Steinahlíð 5.
Byggingarfulltrúi bendir á að framkvæmdin er ekki leyfisskyld ef farið er að skilyrðum skv. g-lið, grein 2.3.5. í byggingarreglugerð 112/2012, með síðari breytingum þar sem innkomið er fullnægjandi samþykki meðeigenda og nágranna. Ef um er að ræða annars konar útfærslu en þar er heimiluð þarf að sækja um byggingarleyfi.